Fórum í kringluna í dag og fann þetta fína sett í Igló sem ég var búin að skoða lengilengi (eða kannski frekar oftoft.. þar sem þetta er úr nýju línunni) á netinu og einnig þessa fínu húfu sem Nóel var ekki svo ánægður með að máta fyrir mig inni..
Annars þá tókst mér líka í dag að sannfæra Danna um að ganga í þessum fínu bleiku buxum sem hann keypti í Zara þegar við vorum á Tenerife, fyrir næstum ári! Og þetta er í fyrsta skipti sem hann fer í þær..
Já maður afrekaði mikið í dag og klukkan bara 3!
Hilsen,
Halldís
Engin ummæli:
Skrifa ummæli